09.05.1979
Efri deild: 93. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4521 í B-deild Alþingistíðinda. (3632)

184. mál, tollskrá

Eyjólfur K. Jónsson:

Herra forseti. Ég er sammála síðasta ræðumanni um að upplýsingar eins og hann hefur farið fram á verður að gefa þegar um þær er beðið. Ég mun ekki standa að afgreiðslu þessa máls í fjh.- og viðskn., sem væntanlega fær það til afgreiðslu í fyrramálið, nema þessar upplýsingar verði gefnar.