09.05.1979
Neðri deild: 83. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4547 í B-deild Alþingistíðinda. (3668)

190. mál, ráðstafanir vegna lánsfjáráætlunar 1979

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Vegna ummæla hv. 1. þm. Austurl. skal fram tekið, að það er ákvörðun mín, að ef tekst að ljúka 2. umr. um þetta dagskrármál fyrir kvöldmatarhlé verði atkvgr. að henni lokinni kl. 9 í kvöld. En mér er kunnugt um að þeir, sem eiga hér till. sem eru í athugun, hafa hugsað sér að draga þær til baka til 3. umr. Ég tel því sjálfsagt að 3. umr. verði ekki fyrr en á morgun, en áformað er að eftir eins og hálfs til tveggja tíma fund í Sþ. gefist kostur á þingdeildafundum og þá mundi þetta mál koma til 3. umr.