09.05.1979
Neðri deild: 83. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4549 í B-deild Alþingistíðinda. (3674)

195. mál, hefting landbrots og varnir gegn ágangi vatna

Frsm. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Á þskj. 631 er nál. frá landbn. N. fékk Sveinbjörn Dagfinnsson ráðuneytisstjóra og Svein Runólfsson landgræðslustjóra til að ræða málið á fundi n. Að ósk landgræðslustjóra voru gerðar þær breytingar, að í stað „landgræðslustjóra“ komi: Landgræðsla ríkisins. Þær einu breytingar gerir n. á þessu frv.

Hv. þm. Eðvarð Sigurðsson var fjarverandi afgreiðslu málsins, en landbn. stendur öll að því.