10.05.1979
Sameinað þing: 91. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4568 í B-deild Alþingistíðinda. (3698)

182. mál, sending matvæla til þróunarlanda

Friðjón Þórðarson:

Herra forseti. Ég þakka hv. allshn. fyrir að hafa unnið vel að þessu máli, og ég vænti þess, að ríkisstj. og ráðamenn taki þetta stóra mál enn á ný til rækilegrar athugunar í framhaldi af þeirri þál. sem væntanlega verður gerð hér á eftir.