07.11.1978
Sameinað þing: 15. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 429 í B-deild Alþingistíðinda. (370)
Umræður utan dagskrár
Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka Garðari Sigurðssyni, formanni þfkn., fyrir þær upplýsingar sem hann gaf hér. Skortur á upplýsingum frá þessari n. er líklega stór þáttur í þeim miklu umr., sem fram hafa farið um launakjör þm.
Ég vil aðeins vegna þessarar umr. láta koma skýrt fram, að fulltrúar Alþfl., hv. þm. Eiður Guðnason og sá, sem hér stendur, voru samþykkir þeim leiðréttingum sem gerðar voru í þfkn. á hlunnindagreiðslum til þm. Þeir báru þetta hins vegar undir þingflokkinn, og ég vil að það komi hér fram, að fulltrúarnir í n. báru þfkn. eftirfarandi skilaboð frá þingflokki Alþfl.:
„Meiri hl. þingflokks Alþfl. telur að Kjaradómur eigi að ákvarða greiðslur vegna ferða- og dvalarkostnaðar þm. og hafa tveir þm, flokksins lagt fram frv. um það efni. Það er því ósk meiri hl. þingflokksins, að þessar greiðslur verði ekki hækkaðar að svo komnu.“
Þessu varð ekki breytt. Staðan er því sú sem hún er. Ég vil taka það skýrt fram í framhaldi af þessari skoðun meiri hl. þingflokks Alþfl., að það er skoðun alls þingflokks Alþfl. að þm. beri að gefa upp hlunnindagreiðslur sínar á skattframtölum.
Niðurskurður fjárframlaga samkvæmt fjárlögum, fsp. (þskj. 21). — Frh. einnar umr.