10.05.1979
Neðri deild: 84. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4622 í B-deild Alþingistíðinda. (3773)

226. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands

Kjartan Ólafsson:

Herra forseti. Ég kveð mér hér hljóðs þar sem hv. þm. Garðar Sigurðsson, 3. þm. Suðurl., hefur beðið mig að flytja þau boð í fjarveru hans að hann dregur til baka til 3. umr. þá brtt. sem hann hefur flutt við þetta frv., en brtt. er á þskj. 579. Ég sé ekki ástæðu til að hefja umr. um efnisatriði málsins, en vil aðeins koma þeim skilaboðum á framfæri í fjarveru hv. þm. að hann dregur brtt. til baka til 3. umr.