10.05.1979
Neðri deild: 84. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4636 í B-deild Alþingistíðinda. (3784)
147. mál, verðgildi íslensks gjaldmiðils
Viðskrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Á fundi í Ed. Alþ. 29. jan. s. l. mælti ég í ítarlegri framsöguræðu fyrir því frv. sem hér liggur fyrir um breytt verðgildi íslensks gjaldmiðils. Hv. Ed. hefur nú afgreitt frv. með þeirri breytingu frá upphaflegri gerð þess, að nú er gert ráð fyrir að gildistaka hins nýja gjaldmiðils, hins breytta gjaldmiðils, verði frá og með 1. jan. 1981 í stað 1. jan. 1980.
Þar sem þetta mál hefur þegar hlotið mikla umr. bæði í hv. Ed. svo og í fjölmiðlum og það er hv. þm. kunnugt tel ég ástæðulaust að fara frekar yfir efni þess hér og legg til, herra forseti, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.