11.05.1979
Efri deild: 98. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4669 í B-deild Alþingistíðinda. (3848)

276. mál, gjaldmiðill Íslands

Frsm. (Jón Helgason):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um frv. til l. um breyt. á l. um gjaldmiðil Íslands. Þetta frv. er afleiðing af samþykkt frv. um breytt verðgildi íslensks gjaldmiðils sem hefur verið afgreitt hér frá hv. Ed. Fjh.- og viðskn. er sammála um að mæla með því, að frv. verði samþ. óbreytt. Karl Steinar Guðnason var fjarverandi afgreiðslu málsins.