11.05.1979
Sameinað þing: 92. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4691 í B-deild Alþingistíðinda. (3892)

234. mál, samvinnufélagalög

Páll Pétursson:

Herra forseti. Hv. flm. hefur hugsað mikið um félagaform og er kunnur að frumkvæði sínu um almenningshlutafélög. Guð hjálpi mér, ef þessir góðu vinir mínir, hv. 5. þm. Norðurl. v. og framkvæmdastjóri Sambands ísl. samvinnufélaga, hafá verið sammála um allt varðandi hlutafélög og samvinnufélög. Ég vil þá bara fullyrða það, að ef svo er, þá mun a. m. k. töluverður hluti af samvinnufólki í landinu vera þeim ósammála.