15.05.1979
Sameinað þing: 95. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4767 í B-deild Alþingistíðinda. (4013)

5. mál, iðngarðar

Frsm. (Þórarinn Sigurjónsson):

Herra forseti. Atvmn. hefur rætt á fundum sínum þáltill. um iðngarða, 5. mál Sþ. Borist hafa,umsagnir um þetta mál og hafa þær allar verið á einn veg, meðmæli með þáltill. Hefur því atvmn. orðið sammála um að leggja til við hv. Alþ., að það samþykki þessa þáltill.

Fjarstödd afgreiðslu þessa máls voru Friðrik Sophusson, Jóhanna Sigurðardóttir og Jón G. Sólnes.