15.05.1979
Efri deild: 101. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4783 í B-deild Alþingistíðinda. (4045)

195. mál, hefting landbrots og varnir gegn ágangi vatna

Jón Helgason:

Herra forseti. Ég var ekki viðstaddur hér þegar 2. umr. þessa máls fór fram í hv. d. og vil því nota þetta tækifæri til þess að þakka landbn. fyrir góða afgreiðslu á frv. Eins og kom fram í máli hv. 3. þm. Austurl. er breyting sú, sem gerð var á frv. í Nd., aðeins formsbreyting og skiptir þess vegna ekki máli í sambandi við efnisatriði. Ég hef því ekkert við það að athuga.