18.05.1979
Neðri deild: 91. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5018 í B-deild Alþingistíðinda. (4338)
151. mál, framhaldsskólar
Forseti (Ingvar Gíslason):
Það er oft erfitt að treysta á minnið, en þó hygg ég að það sé reyndin að þannig hafi verið haldið á málum fyrr þegar þannig stendur á, að afbrigða sé leitað fyrir till. nokkru síðar en hún kemur fram. Ég hef sagt það og ég endurtek það, að þessari umr. mun ekki ljúka hér í nótt. En það eru fyrst og fremst vinsamleg tilmæli mín til hv. þdm., sem hér eru staddir, að þeir taki þátt í fundarstörfunum og þeir, sem á mælendaskrá eru og ég gef orðið, ræði það mál sem til umr. er.