19.05.1979
Efri deild: 110. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5045 í B-deild Alþingistíðinda. (4370)

317. mál, sjómannalög

Eyjólfur K. Jónsson:

Herra forseti. Mér er ekki kunnugt um hvort reyna á að reka þetta mál í gegnum þingið, en mér skilst þó að svo muni ekki vera. Ég hygg að það sé ekki heppilegt að reka þetta mál áfram núna þegar vinnudeila stendur yfir þar sem sjómenn og yfirmenn hafa einmitt afþakkað afskipti ríkisvaldsins. Ég held að það sé óhyggilegt að rugla þær samningsumleitanir, sem nú fara fram, með því að reka þetta mál áfram, og ég vara við því.