19.05.1979
Efri deild: 110. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5046 í B-deild Alþingistíðinda. (4371)
317. mál, sjómannalög
Menntmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Eins og skýrt kom fram í máli mínu er lagafrv. þetta undirbúið í beinum tengslum og í framhaldi af þeim breytingum sem gerðar hafa verið á rétti landverkafólks og ber ekki að líta á flutning þessa frv. í neinum tengslum við yfirstandandi deilu farmanna. Ég tel að félmn. eigi að athuga þetta mál, og ef hún telur að það eigi ekki að verða verulegur ágreiningur um málið, þá eigi að freista þess að afgreiða málið fyrir þingslit. Ef það hins vegar reynist ekki mögulegt, þá verður það auðvitað að hafa sinn gang. Hitt er svo allt annað mál, að talsmenn Sjálfstfl. hafa ekki verið sérlega liðlegir að auðvelda afgreiðslu þessara félagslegu réttindamála verkalýðshreyfingarinnar, þannig að það kemur í sjálfu sér ekkert á óvart að talsmaður þess flokks mæti heldur gegn því að málið verði afgreitt.