19.05.1979
Efri deild: 110. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5046 í B-deild Alþingistíðinda. (4374)

267. mál, stofnun og slit hjúskapar

Jón Helgason:

Herra forseti. Í fjarveru formanns allshn., frsm. í þessu máli, mæli ég fyrir nál. um frv. til l. um breyt. á lögum um stofnun og slit hjúskapar. Allshn. hefur haft þetta frv. til athugunar og leggur eindregið til að það verði samþ. óbreytt.