09.11.1978
Sameinað þing: 17. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 509 í B-deild Alþingistíðinda. (442)

28. mál, niðurfelling gjalda af efni til hitaveitna

Flm. (Bragi Sigurjónsson:

Herra forseti. Aðeins örfá orð. Ég þakka kærlega hv. þm. sem hafa tekið undir þessa till. mína og stutt hana. Ég vil lýsa því hér yfir, að ég hef ekkert á móti því, að sá skilningur sé lagður í hana sem hv. 5. þm. Vestf. var að mælast til.