21.05.1979
Sameinað þing: 100. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5100 í B-deild Alþingistíðinda. (4464)

51. mál, verktakastarfsemi við Keflavíkurflugvöll

Utanrrh. (Benedikt Gröndal):

Herra forseti. Ég er og hef lengi verið mjög hlynntur þeirri hugmynd, að þn. eigi að gegna stóru og veigameira rannsóknarhlutverki en þær hafa gert, og ég fagna í sjálfu sér þróun í þá átt. Í þessu tilviki er um að ræða fyrirtæki sem heyrir undir mitt rn. Ég hef eytt miklum tíma í það, síðan ég kom þangað að kynna mér starfsemi þess. Það er n. starfandi, skipuð af fyrirrennara mínum, sem fjallar um starfsemina sem um er að ræða. Með tilliti til þess, hve málið er mér skylt, tek ég ekki þátt í afgreiðslu þess og greiði ekki atkv.