21.05.1979
Neðri deild: 95. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5165 í B-deild Alþingistíðinda. (4543)

200. mál, almannavarnir

Frsm. (Vilmundur Gylfason):

Herra forseti. Í nál. á þskj. 845 frá allshn. er fjallað um frv. til l. um breyt. á lögum nr. 94 frá 29. des. 1962, um almannavarnir, sbr. lög nr. 30/1967, um breyt. á þeim lögum. N. hefur fjallað um frv. og leggur til að það verði samþ. Undir þetta rita Vilmundur Gylfason, Einar Ágústsson, Gils Guðmundsson, Árni Gunnarsson, Svava Jakobsdóttir, Friðrik Sophusson og Matthías Á. Mathiesen, allt hv. þm.