22.05.1979
Sameinað þing: 101. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5190 í B-deild Alþingistíðinda. (4561)
297. mál, rekstrarlán til sauðfjárbænda
Fyrirspyrjandi (Kjartan Ólafsson):
Herra forseti. Ég hef á þskj. 641 leyft mér að bera fram til landbrh. fsp. um rekstrarlán til sauðfjárbænda. Fsp. er á þessa leið, í þremur liðum:
„1. Hvað hafa rekstrarlán til sauðfjárbænda undanfarin 8 ár numið stórum hluta hvert ár um sig af skilaverði við upphaf sláturtíðar fyrir heildarfjölda sláturfjár haustið eftir að lánin voru veitt?
2. Hverjar eru núgildandi reglur í þessum efnum og hver má ætla að verði í ár breytingin frá fyrra ári hvað varðar upphæð rekstrarlána sem hlutfalls af skilaverði við upphaf sláturtíðar á komandi hausti?
3. Hefur ríkisstj. áformað að vinna að breytinum á þeim lánareglum sem nú gilda um rekstrarlánin, og ef svo er, hvaða breytingum hyggst þá ríkisstj. beita sér fyrir?“
Ég vil aðeins, áður en ég lýk máli mínu, minna á það, að í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarflokkanna frá því að núv. hæstv. ríkisstj. var mynduð á s. l. hausti segir orðrétt, með leyfi hæstv. forseta:
„Rekstrar- og afurðalánum verði breytt þannig, að bændur geti fengið laun sín greidd og óhjákvæmilegan rekstrarkostnað svipað og aðrir aðilar fá nú.“
Ástæðan fyrir því, að ég ber fram þær fsp. sem ég hef hér kynnt og vænti svara við, er sú, að ég hef því miður nokkra ástæðu til að ætla að svo horfi að rekstrarlán til bændanna verði lægri á hvern dilk nú í ár heldur en nokkru sinni fyrr og séu jafnvel komin niður fyrir 10%. En þetta mun væntanlega allt saman skýrast í svari hæstv. landbrh., og ég legg ekki síst áherslu á að fá fram svör hans við spurningunni í 3. lið um fyrirhugaðar ráðstafanir ríkisstj.