22.05.1979
Sameinað þing: 102. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5202 í B-deild Alþingistíðinda. (4574)

16. mál, beinar greiðslur til bænda

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Í meðferð n. á þessari till. var vilji allra nm. að ná samkomulagi um afgreiðslu málsins. Það tókst ekki á síðasta stigi þannig að ég átti aðild að meiri hl. n. Ég tel hins vegar að þetta mál þurfi nánari athugunar fyrir ýmissa hluta sakir og hefði þurft nánari skoðun í meðferð þingsins. Ég mun hins vegar ekki leggjast beint gegn þeim meiri hl., sem ég hef átt aðild að áður, þannig að ég greiði ekki atkv.