22.05.1979
Sameinað þing: 102. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5208 í B-deild Alþingistíðinda. (4587)
Umræður utan dagskrár
Geir Gunnarsson:
Herra forseti. Ég vil aðeins láta það koma fram í tilefni af þessum umr., að við afgreiðslu fjárlaga ákvað fjvn. að 210 millj. kr. skyldi varið til að fjölga starfsliði við ríkisspítalana, þar með talið Kópavogshælið. Fjvn. óskaði eftir því við heilbrrn., að það gerði till. um hvernig þessari fjárhæð skyldi varið og hvert þessar stöðuaukningar skyldu fara. Í fyrra bréfi, sem fjvn. fékk frá heilbrrn., var ekki gerð till. um að auka starfslið á Kópavogshælinu, en síðar var því breytt að ósk rn. og fjárhæðinni varið til þess að auka stöðurnar um þá tölu sem hæstv. heilbrrh. nefndi áðan. Það er því ákvörðun heilbrrn. að telja aðrar stöðuaukningar nauðsynlegri en þær sem nú er talið að vanti við Kópavogshælið. En í sambandi við það sem hefur komið til umr. nú upp á síðkastið varðandi málefni Kópavogshælis, hefur ekkert verið rætt við fjvn.