14.11.1978
Sameinað þing: 19. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 536 í B-deild Alþingistíðinda. (468)

Rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Eðvarð Sigurðsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haft til athugunar kjörbréf Guðmundar J. Guðmundssonar, 1. varaþm. Alþb. í Reykjavík. Kjörbréfanefnd hefur ekkert við kjörbréfið að athuga og leggur til að kosning Guðmundar J. Guðmundssonar verði tekin gild og kjörbréfið samþykkt.