23.05.1979
Sameinað þing: 103. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5281 í B-deild Alþingistíðinda. (4734)

264. mál, fiskeldi að Laxalóni

Vilmundur Gylfason:

Herra forseti. Aðeins örfá orð um þingsköp. Flutningsaðili þessa máls er allshn. Nd. og skilningur n. var sá sami og fram kom hjá forseta Sþ., þ. e. að það skuli vera Alþingi sem kjósi þá þriggja manna nefnd sem hér um ræðir. Þetta var skilningur n. sem lagði málið fram.