23.05.1979
Efri deild: 118. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5283 í B-deild Alþingistíðinda. (4744)

298. mál, ríkisreikningurinn 1977

Frsm. (Jón Helgason):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um frv. til l. um samþykkt á ríkisreikningnum fyrir árið 1977. Nefndin varð sammála um að mæla með samþykkt frv. óbreytts. Jón G. Sólnes var fjarverandi afgreiðslu málsins.