23.05.1979
Efri deild: 119. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 5285 í B-deild Alþingistíðinda. (4756)

Starfslok efri deildar

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Ég vil fyrir hönd okkar þdm. þakka hæstv. forseta fyrir góðar óskir í garð okkar. Ég vil jafnframt bera fram óskir á þessu kalda vori um hina bestu farsæld til handa hæstv. forseta og fjölskyldu hans á vikunum fram undan, þakka honum frábærlega góða og drengilega fundarstjórn og svo það enn fremur, með hve mikilli kurteisi hann hefur farið með þann sérstaka, ef ekki þann einstaka trúnað sem deildin fól honum í haust. Ég óska þess, að við sjáum hann hressan að hausti undan góðu sumri, og bið hv. deildarþm. að rísa á fætur þessari ósk til staðfestingar. — [Dm. risu úr sætum.]