21.11.1978
Sameinað þing: 24. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 757 í B-deild Alþingistíðinda. (612)
331. mál, útbreiðsla sjónvarps
Menntmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Hv. þm. Alexander Stefánsson hefur lagt hér fram nokkrar spurningar um dreifikerfi sjónvarps og útbreiðslu þess á yfirstandandi ári. Ég hef aflað upplýsinga um þetta mál frá Ríkisútvarpinu, sem fengið hefur skýrslu radíódeildar Landssíma Íslands um framkvæmdir við dreifikerfi sjónvarps á þessu ári. Í bréfi Ríkisútvarpsins kemur fram, að fylgt hafi verið áætlun sem fyrrv. menntmrh. samþykkti með bréfi hinn 21. mars s.l. Í bréfi Ríkisútvarpsins segir einnig:
„Mjög mikið hefur verið unnið að dreifikerfisframkvæmdum á þessu ári. 10 nýjum FM-stöðvum hefur verið komið upp og 4 verið endurnýjaðar. Örbylgjukerfið nær nú frá Reykjavík til Stykkishólms og um Stórholt til Vaðlaheiðar. Á liðnu sumri var örbylgjukerfið framlengt frá Vaðlaheiði um Viðarfjall í Þistilfirði og Hellisheiði eystra til Gagnheiðar. Ráðgert er að örbylgjusambandið verði á næsta ári komið til Vestmannaeyja og þaðan til Háfells austan Víkur í Mýrdal.“
Um 1. spurningu hv. þm., sem var á þá leið, hvað líði framkvæmdum við útbreiðslu sjónvarps sem ákveðnar voru á þessu ári, þá vísar Ríkisútvarpið í skýrslu radíódeildar Landssíma Íslands, en þar kemur fram að í fyrsta lagi sé í Þorlákshöfn búið að reisa hús og staura, tæki séu komin til landsins og rafmagn sé væntanlegt í nóvember, uppsetning áætluð í desember. Í Sandgerði sé áformað að stöðin verði tekin í notkun 27. okt. Í Grundarfirði, Kollafirði, Drangsnesi hafi verið unnið að lokafrágangi og eigi stöðvarnar að vera komnar í notkun fyrir 12. nóv. Varðandi Austur-Húnavatnssýslu og svæðið Blöndudalur í — Blöndudalur II — Svartárdalur segir í skýrslu radíódeildar, að raflínur séu væntanlegar síðari hluta nóvember. Á sama tíma verður unnið að uppsetningu tækja og loftneta. Varðandi Laxárdal í sömu sýslu segir að uppsetningu húss verði væntanlega lokið á þessu ári, en uppsetning stöðvar sé áætluð 1979. Varðandi Hörgárdal og Öxnadal segir: Húsamöstur komin og tæki og loftnet verða sett upp snemma í des. Enn er óvíst um lagningu raflínu til staðarins. Um Bakkafjörð segir: Aðstöðu að verða lokið, tæki komin að hluta og uppsetningu væntanlega lokið í nóvembermánuði. Um Mjóafjörð segir: Stöðin tekin í notkun 27. okt. Um stöðvar á Álmannaskarði, í Lóni og Borgarhöfn segir: Hús og möstur eru komin á stöðina, en enn þá er óljóst hvenær lagningu raflínu lýkur. Tæki eru komin til landsins og loftnet eru væntanleg í nóvember. Um Háfell segir: Nýr og aflmeiri sendir hefur verið pantaður og er áætlað að hann verði settur upp á miðju næsta ári. Um Arnarnes segir: Sendir er kominn til landsins, en uppsetningu hans og loftneta verður þó vart lokið fyrr en snemma árs 1979. Um endurnýjun sjónvarpssenda segir að sú endurnýjun hafi átt sér stað á Blönduósi í febr. 1978 og í Hegranesi í ágúst 1978.
2. spurning hv. þm. er: „Hvaða framkvæmdir eru ráðgerðar á árinu 1979?“
Svarið er: Framkvæmdaáætlun fyrir árið 1979 liggur enn ekki fyrir. Inn í þá mynd hlýtur ástand langbylgjukerfisins að koma, en það virðist varla lengur geta beðið aðgerða. Mikil verkefni bíða enn úrlausnar þótt dreifing sjónvarpsefnis nái nú til ca. 96% landsmanna.
3. spurning hv. þm. er: „Er fylgt þeirri framkvæmdaáætlun sem unnin var á vegum menntmrh. haustið 1976?“
Allur undirbúningur að uppbyggingu dreifikerfis sjónvarps hefur verið í samræmi við tillögur nefndar sem skilaði áliti 3. des. 1976. Tekjur af aðflutningsgjöldum hafa þó ekki runnið óskertar til dreifikerfis framkvæmda og búnaðar vegna litvæðingar sjónvarps. Æskilegt væri að fá aðflutningsgjöldin sem markaðan tekjustofn, en með því móti mundu framkvæmdaáætlun og fjármögnun haldast í hendur.
4. spurning hv. þm. er: „Hvað eru tollatekjur á sjónvarpstækjum áætlaðar í ár og á árinu 1979?“
Svarið er: Sýnt er að aðflutningsgjöld af litsjónvarpstækjum og loftnetum munu fara nokkuð yfir 1 milljarð á þessu ári. Aðeins 23 svarthvít sjónvarpstæki hafa verið flutt inn á árinu. Ætla má að innflutningur litsjónvarpstækja haldist í verulegu magni á næsta ári.
Ég vænti þess, að fsp. hv. þm. hafi þar með verið svarað.