21.11.1978
Sameinað þing: 25. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 924 í B-deild Alþingistíðinda. (655)
35. mál, bundið slitlag á vegum
Flm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):
Herra forseti. Það skal verða örstutt. — Ég sé ekki ástæðu til þess að fara frekar út í þann áherslumun sem er á afstöðu okkar hv. þm. Stefáns Valgeirssonar, en ég vil þó árétta það, að ég tel mikið atriði að tengja byggðir landsins með hringvegi, að tengja landshlutana saman.
Út af því, sem hv. þm. Páll Pétursson sagði, vil ég aðeins leiðrétta það, ð það er því miður ekki komið bundið slitlag á milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur. Það hefur verið lagt slitlag á örstuttan spotta milli Ísafjarðar og Hnífsdals, en það gefur ekki neina mynd af því, hvernig er að fara fjallvegi, því að þessi spotti er alveg á sléttu.
Hv. þm. saknaði þess, að það væru ekki vissar upplýsingar,í þskj. En ég vil árétta það, að þær upplýsingar, þó í grófum dráttum sé, er að finna í þeirri ræðu sem ég flutti fyrir till. — einmitt þau tvö atriði sem hann nefndi.
Hv. þm. sagði, að aðrar framkvæmdir væru meira virði en slitlag, og nefndi dæmi frá vinnunni í sumar. Um þetta felli ég engan dóm.
Hv. þm. Bragi Níelsson var að tala um að ég hefði mjög sveigjanlegan málflutning hér. En ég vil bara árétta það, að meginatriðið, sem fyrir okkur flm. vakir með þessari till., er spurningin: Hvernig er unnt að fá meira fé í vegagerðina, auðvitað með skynsamlegu móti, það sé ekki verið að gera neina heimskulega hluti í því sambandi? Og svo: hvernig er hægt að koma við meiri framkvæmdahraða án þess að skekkja almennar framkvæmdaáætlanir þjóðarbúsins eða almenna vegáætlun? Hvernig er þetta unnt? Það er spurningin. Við höfum bent þarna á eina leið sem við teljum líklega til þess arna, þ.e. að taka út úr þennan dýra og að flestra dómi arðgæfa þátt og benda á möguleika til þess að fjármagna hann sérstaklega og gera þannig mögulegt að vinna af meiri hraða að öðrum framkvæmdum, sem vitanlega, eins og hv. þm. sagði, eru gífurlega þýðingarmiklar. Ég skal ekkert um það segja, hvaða framkvæmdir hafa mesta þýðingu þá og þá. En vissulega geta það verið aðrar framkvæmdir en slitlagið, þó að hagkvæmt sé talið og arðgæft á umferðarþyngstu vegunum.