27.11.1978
Sameinað þing: 27. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1004 í B-deild Alþingistíðinda. (701)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Gils Guðmundsson):

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 27. nóv. 1978.

Formaður þingflokks framsóknarmanna hefur ritað mér á þessa leið:

„Samkv. beiðni Tómasar Árnasonar, 4. þm. Austurl., sem nú er á förum til útlanda í opinberum erindum, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að Halldór Ásgrímsson, fyrrv. alþm., taki á meðan sæti hans á Alþingi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fara fram í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Ingvar Gíslason,

forseti Nd.

Ég vil biðja kjörbréfanefnd að taka kjörbréf Halldórs

Ásgrímssonar til rannsóknar og gef 7 mínútna fundarhlé. —[Fundarhlé.]