28.11.1978
Sameinað þing: 28. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1077 í B-deild Alþingistíðinda. (727)

335. mál, atvinnumöguleikar ungs fólks

Félmrh. (Magnús H. Magnússon):

Herra forseti. Þessari fsp, er fljótsvarað. Það hefur til skamms tíma ekkert verið gert í þessu máli. Aftur á móti hefur áætlanadeild Framkvæmdastofnunar nýlega verið falið að skoða þetta mál í framhaldi af þessari þál., og ég vona að út úr þeirri könnun komi það sem þál. er um efnislega. Ég endurtek: fram undir það síðasta hefur ekkert verið í málinu gert.