05.12.1978
Sameinað þing: 30. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1276 í B-deild Alþingistíðinda. (857)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Friðjón Þórðarson):

Mér hefur borist eftirfarandi bréf:

„Reykjavík 4. des. 1978.

Benedikt Gröndal, 3. þm. Reykv., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 2. varamaður Alþfl. í Reykjavík, Bragi Jósepsson námsráðgjafi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Ingvar Gíslason,

forseti Nd.

Til forseta Sþ.“

Mér hefur borist kjörbréf Braga Jósepssonar og vil ég biðja hv. kjörbréfanefnd að taka það til skoðunar. Til þess fær hún 5 mínútur. — [Fundarhlé.]