05.12.1978
Sameinað þing: 30. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1280 í B-deild Alþingistíðinda. (867)

89. mál, Vesturlína

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Síðasti ræðumaður tók af mér ómakið, því að það var þetta sem ég ætlaði að leiðrétta, en síðan er nú liðinn hálfur mánuður. Ég ætla því ekki að nota þennan tíma til þess að gera neinar frekari aths. eða umr., en láta í ljós vanþóknun mína á stjórn Sþ. að taka til umr. fsp. og láta svo líða hálfan mánuð á milli. Ég tel slíkt þinghald ekki til sóma fyrir Alþingi Íslendinga.