05.12.1978
Sameinað þing: 30. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1285 í B-deild Alþingistíðinda. (874)
98. mál, raungildi olíustyrks
Pálmi Jónsson:
Herra forseti. Ég held að það væri miklu réttara fyrir þá hv. stjórnarliða, sem hér hafa talað, suma hverja, að spara sér stóru orðin um átakanlega þróun olíustyrksins á skeiði fyrrv. ríkisstj. og láta sjá hver niðurstaðan verður af störfum þeirra í núv. hæstv. ríkisstj. Eins og fram hefur komið, er gert ráð fyrir í fjárlagafrv. fyrir næsta ár að styrkveiting þessi sé jafnhá á mann og var á síðasta ári, eða 10 500 kr., og lækkar það heildarfjármagnið í olíustyrkinn um 176 millj. kr. Það er sem sé lækkun á fjármagni um 176 millj. kr. í því frv. sem fyrir liggur. Ég tel að það sé ástæða til að athuga þetta mál gaumgæfilega og það þurfi vissulega að gera þarna bragarbót á. En það er miklu sæmra fyrir þessa hv. þm. að gera það við fjárlagaafgreiðslu heldur en að vera að hrósa sér af því fyrir fram í hv. sameinuðu alþingi.
Það komu fróðlegar upplýsingar fram í mali hæstv. viðskrh. um samanburð í þessum efnum og um verð á olíu eins og nú standa sakir svo og, sem flestum mun nú kunnugt, að mikil hætta er á því að olíuverð fari mjög hækkandi á næstunni.
Ég skal ekkert dæma um þá útreikninga, sem hér eru lagðir til grundvallar, um 12 – 15 lítra á rúmmetra íbúðarhúsnæðis á ári, en sú tala kemur mér þó ókunnuglega fyrir sjónir. Þar sem ég er kunnugur mun þurfa að jafnaði miklu meira magn til þess að hita upp íbúðarhúsnæði heldur en hér er talið.
Ég skal ljúka máli mínu, herra forseti, og ekki brjóta þau mörk sem þingsköp setja í þessum umr., aðeins bæta því við, að þessar umr. og önnur þau mál, er þetta snerta, sýna ljóslega hversu mikil þörf er á fyrir okkur Íslendinga að nýta innlenda orkugjafa í vaxandi mæli til heilla fyrir þjóðina alla.