05.12.1978
Sameinað þing: 31. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1298 í B-deild Alþingistíðinda. (891)

111. mál, ráðstöfun gengismunar o.fl.

a) Með bréfi dagsettu 21. september 1978 óskaði sjávarútvegsráðuneytið eftir, að Þjóðhagsstofnun tilnefndi einn mann og Framkvæmdastofnun ríkisins tvo til þrjá menn í starfshóp til þess að gera athugun á stöðu fiskvinnslufyrirtækja, sem búa við svæðisbundin vandamál, og gera tillögur um úrlausn þeirra. Þjóðhagsstofnun tilnefndi einn mann og Framkvæmdastofnun ríkisins tvo. Í erindisbréfi starfshópsins er honum ætlað að hafa samráð við heimamenn svo og hagsmunaaðila og lánastofnanir sjávarútvegsins. Í erindisbréfinu segir enn fremur:

„Starfshópurinn skal skila tillögum um fjárhagslega, tæknilega og stjórnunarlega endurskipulagningu fyrirtækja í sjávarútvegi á hverju svæði. Við athugunina og áætlanagerð skal sérstaklega stefnt að því að tryggja atvinnuöryggi, samræmi í uppbyggingu veiða og vinnslu og aukna hagkvæmni og bætta nýtingu í vinnslunni.“ Starfshópurinn tók til starfa í lok september s.l.

Fyrsta verkefni þessa starfshóps var svæðisbundinn vandi frystihúsanna á Suðurnesjum. Ástæður þess, að Suðurnesin voru tekin fyrst, voru einkum tvær:

1) Frystihúsin á Suðurnesjum höfðu þegar stöðvast vegna greiðsluerfiðleika.

2) Vitað var fyrir, að svæðisbundinn vandi frystihúsanna var mestur á Suðurnesjum.

Í sérstakri athugun á afkomu frystihúsa eftir landshlutum, sem Þjóðhagsstofnun gerði í október 1977, kom meðal annars fram, að afkoma frystihúsanna á Suður- og Suðvesturlandi var sýnn lökust.

Í þessu sambandi verður að hafa í huga að þeim hluta gengismunarins, sem hér er um að ræða, er sérstaklega ætlað að stuðla að atvinnuöryggi og í reglugerð tekið fram að mikilvægustu fyrirtæki vegna atvinnuöryggis skuli hafa forgang að lánsfé, enda hafi rekstur þegar stöðvast eða stöðvun sé yfirvofandi.

Athugun starfshópsins hefur þannig beinst fyrst að frystihúsunum á svæðinu frá Grindavík til Voga, en á þessu svæði eru nú 24 frystihús. Eftirfarandi atriði hafa sérstaklega verið könnuð:

1) Mikilvægi fyrirtækjanna í atvinnulífi á hverjum stað.

2) Fjárhagsstaða fyrirtækjanna nú, rekstrarárangur þeirra á þessu ári og á undanförnum árum og almennt mat á stjórnun fyrirtækjanna.

3) Tæknibúnaður fyrirtækjanna, afkastageta og nýting.

Starfshópurinn hefur skilað fyrstu tillögum sínum til sjávarútvegsráðherra og kemur þar m.a. fram, að starfshópurinn telur að af 24 frystihúsum á svæðinu skipti 9–11 þeirra höfuðmáli, bæði að því er varðar atvinnulíf og framleiðslu. En fyrirtækin 11 eru með nálægt 80% af freðfiskframleiðslunni á svæðinu, þannig að atvinnulega séð skiptir höfuðmáli að þau séu starfrækt.

Starfshópurinn hefur kannað fjárhagsstöðu og tæknibúnað áðurgreindra fyrirtækja, sem talin eru mikilvægust út frá atvinnusjónarmiði. Lagt hefur verið mat á kostnað við brýnustu tæknilegu endurbætur á þessum fyrirtækjum og nauðsynlega styrkingu á fjárhagsstöðu þeirra og eru settar fram tillögur um þetta efni.

Af öðrum tillögum starfshópsins má nefna:

1) Lagt er til, að komið verði á fót sameiginlegri fiskmóttöku og fiskmiðlun fyrir togaraafla á svæðinu, þannig að hráefnið berist jafnt að og unnt sé að vinna það nýtt.

2) Lagt er til, að komið verði á fót á svæðinu sameiginlegri reiknistofu frystihúsanna, sem m.a. fylgdist með hráefnisnýtingu og vinnulaunakostnaði frystihúsanna og veitti þeim almenna rekstrarráðgjöf. En hráefni og vinnulaun eru að jafnaði um 3/4 af rekstrarkostnaði hvers frystihúss.

Þá telur starfshópurinn þýðingarmikið, að togaraaflinn gegni veigameira hlutverki í hráefnisöflun frystihúsanna en nú er. En togaraútgerð tryggir öruggari og jafnari hráefnisöflun allt árið en bátaútgerð megnar. Eins og nú er, kemur nálægt helmingi þess afla, sem frystihúsin 11 taka á móti í frystingu, söltun og herslu, af togurum.

Unnið er nú að framkvæmd þeirra tillagna starfshópsins, sem lúta að styrkingu á fjárhagsstöðu fyrirtækjanna með breytingum á lausaskuldum í lán til langs tíma. Í þessu sambandi standa yfir viðræður við viðskiptabanka fyrirtækjanna og fleiri aðila um þátttöku í lánalengingum. Leitast verður við að hraða framkvæmd málsins eins og kostur er, þannig að úrslit mála verði kunn fyrir áramót. Sett verða skilyrði fyrir lánveitingum, eftir því sem þurfa þykir, til þess að ná fram aukinni hagkvæmni í rekstri og stjórnunarlegum endurbótum.

Nú þegar tillögur liggja fyrir um aðgerðir í málefnum frystiiðnaðarins á Suðurnesjum, verða aðrir landshlutar eða landssvæði tekin fyrir. Raunar er þegar hafin athugun á stöðu frystihúsanna á suðurlandi og í Vestmannaeyjum og í framhaldi af því koma önnur landssvæði.

b) Ekki er byrjað að veita fyrirgreiðslu af gengismun í formi hagræðingarlána.

c) Með tilvísun til svars við b-lið, er ekki tilefni til að veita svör við þessum lið.

d) Þótt hagræðingarlán hafi ekki enn verið veitt, er rétt að víkja að þeim meginsjónarmiðum, sem gilda um úthlutun þeirra og þá vinnu starfshópsins.

Í reglugerð nr. 336 frá 22. september 1978, um ráðstöfun þess hluta gengismunarfjár, sem ætlaður er til hagræðingar og fjárhagslegrar endurskipulagningar í fiskiðnaði, segir m.a. í 3. gr. að „þau frystihús, sem stöðvað hafa rekstur eða þar sem rekstrarstöðvun er yfirvofandi og mikilvæg eru fyrir atvinnuöryggi á viðkomandi stað, skulu hafa forgang við lánveitingar samkvæmt reglugerð þessari, enda horfi stuðningur við þau til bætts skipulags í veiðum og vinnslu.“

Samkvæmt þessu verður leitast við að skoða landssvæði í heild frekar en einstaka staði, og þá m.a. með tilliti til samvinnu milli staða. Forgangsverkefni er enn fremur að athuga stöðu þeirra fyrirtækja, sem stöðvað höfðu rekstur, enda skulu þau njóta forgangs af lánsfé.

Athugun á stöðu frystihúsanna á öðrum landssvæðum verður með svipuðum hætti og athugun sú, sem þegar hefur verið gerð á Suðurnesjum. Við mat á lánshæfni fyrirtækjanna verður könnuð fjárhagsstaða þeirra og mikilvægi í atvinnulífinu, rekstrarárangur þeirra, tæknibúnaður og almennt mat á stjórnun fyrirtækjanna.

Gengið var til kosninga um fyrri varaforseta deildarinnar. Kosningu hlaut Jón Helgason, 6. þm. Suðurl., með 12 atkv., en 3 seðlar voru auðir.