07.12.1978
Sameinað þing: 32. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 1373 í B-deild Alþingistíðinda. (941)

Umræður utan dagskrár

Gunnlaugur Stefánsson:

Herra forseti. Um það mál, sem hér er til umr., vildi ég segja þetta: Sýnið kristinni trú og sögu Krists og síðast en ekki síst Alþ. þá virðingu að hefja ekki og halda ekki áfram umr. þessari á þeim grundvelli sem hér hefur verið gert. Þessi umr. öll er Alþingi til vansæmdar. Ég skora á þig, herra forseti, að ljúka umr. hér og nú.