15.10.1979
Neðri deild: 1. fundur, 101. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í B-deild Alþingistíðinda. (25)

Sætaskipun

Lúðvík Jósepsson:

Herra forseti. Ég sé að nýkjörinn forseti vor er í miklum vanda og það virðist leika einhver vafi á því að hann megi framkvæma þessa athöfn. Það er því aðeins vinsamleg ábending mín, af því að ég veit að það eru margir uppteknir nú um þessar mundir, að forseti gæti nú komist úr mestum hluta þessa vanda með því að fresta málinu til morguns.