16.10.1979
Neðri deild: 2. fundur, 101. löggjafarþing.
Sjá dálk 19 í B-deild Alþingistíðinda. (37)

Sætaskipun

Sverrir Hermannsson:

Forseti. Þetta er í fyrsta skipti að vísu í ekki mjög langri þingsögu, í ein 8 ár, sem ég minnist þess að forseti hafi ekki staðið við gefnar yfirlýsingar úr forsetastól, ef þessa aðferð á að viðhafa sem hann nú lýsir, því að hann tók fram að lokinni aths. minni hér fyrr að að loknu kjöri í n. færi fram hlutun um sæti í hv. deild.