21.02.1980
Neðri deild: 40. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 905 í B-deild Alþingistíðinda. (1003)
Umræður utan dagskrár
Sighvatur Björgvinsson:
Hæstv. forseti. Að hugsa sér að Snorri Sturluson skuli einu sinni hafa búið í Reykholti. Ég kom hingað upp í ræðustól aðeins til þess að beina tiltekinni fsp. til hæstv. forsrh. út af afgreiðslu mála hér í Alþ. fyrir þinghlé. Ég ætlaði ekki að tefja umr., hvorki um útsvör né um frv. það sem hér liggur fyrir þessari hv. d. og hefur orðið ástæða þess að ég kvaddi mér hljóðs.
Ég vil aðeins vekja athygli hæstv, félmrh. á því, að það eru liðnir nokkrir dagar síðan ég óskaði eftir því, að við Alþfl.-menn fengjum að vita hvaða mál ríkisstj. hefði áhuga á að afgreiða fyrir þinghlé, svo að við gætum gengið til þess verks að gera upp hug okkar til þeirra mála og gætum þannig tekið þátt í afgreiðslu þeirra án þess að tafir þyrftu að hljótast af í störfum þingsins. Hæstv. félmrh. hefur hins vegar aldrei haft fyrir því allan þennan tíma að láta vita af því, að hann hafi áhuga á að afgreiða þetta mál. Og hæstv. forsrh. hefur þráfaldlega tekið það fram, og staðfesti það hér úr ræðustól áðan, að hann hefur ekki í nafni ríkisstj. óskað eftir að þetta mál yrði afgreitt. Þess vegna held ég, að ef hæstv. félmrh. ætlar að leita að einhverjum sökudólg í þessu sambandi ætti hann að líta í spegil, vegna þess að það er hann, hæstv. ráðh., sem heldur að hann geti komist upp með það að fá afgreidd hér á Alþ., þegar til stendur að fresta fundum þingsins um nokkurra daga skeið, þau mál sem honum einum dettur í hug, án þess að hann þurfi að hafa fyrir því að beita þeim almennu mannasiðum að hafa samráð við þá menn sem hann ættast til þess að rétti upp hönd og samþykki þau mál sem honum þóknast að krefjast að fá afgreidd hér. (Forseti: Aths. gerist nokkuð löng.) Hún verður mjög stutt, það sem eftir er af henni.
Ég ætlaði aðeins að taka það fram í fyrsta lagi, að sveitarfélög geta ekki afgreitt fjárhagsáætlanir sínir fyrr en skattstiginn liggur fyrir. Það eru engar tillögur um skattstiga á ferðinni í hv. félmn. þessarar deildar í sambandi við mál það sem þar er til meðferðar. Þó svo að allar þær breytingar yrðu samþykktar sem þar er rætt um gætu sveitarfélögin ekki gengið til afgreiðslu fjárhagsáætlana sinna. En hitt er rétt, að í því hálfs mánaðar þinghléi, sem hæstv. ríkisstj. óskar nú eftir að fá, gefst auðvitað ekki tími til þess að afgreiða neitt slíkt. Ég tek það fram, að við Alþfl.-menn erum reiðubúnir til þess að sitja hér á fundum alla næstu viku svo að hægt sé að afgreiða ekki bara lögin um tekjustofna sveitarfélaga, heldur líka skattstigana. Það skal þá standa upp á hæstv. félmrh. hvort hægt verður að afgreiða þetta mál á næstu dögum þannig að sveitarfélögin geti gengið til þess verks að ganga frá fjárhagsáætlunum sínum. Ef hæstv. félmrh. vill það, þá erum við Alþfl.-menn reiðubúnir til þess að hverfa frá því að veita erindi hæstv. forsrh. þá úrlausn sem við gerðum í gær, að fallast á frestun á fundum Alþingis nú í vikulokin. Við erum reiðubúnir til þess. Það þarf ekki nema eitt orð, hæstv. félmrh., þá hverfum við frá stuðningi við tilmæli hæstv. forsrh., þannig að hægt sé að ganga frá afgreiðslu á tekjustofnafrv. því sem hæstv. ráðh. ber svo mjög fyrir brjósti, þ. á m. skattstigaákvörðunum, sem koma í veg fyrir það, séu þær ekki teknar, að sveitarfélögin geti gengið frá fjárhagsáætlunum sínum. — Eitt orð frá hæstv. ráðherra.