21.02.1980
Sameinað þing: 27. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 916 í B-deild Alþingistíðinda. (1022)
Umræður utan dagskrár
Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Aðeins örfá orð. — Ég skil ekki almennilega hæstv. forsrh. þegar hann reynir að skýla sér á bak við Alþfl. einan í sambandi við afgreiðslu frv. um ábyrgðarheimildir og greiðsluheimildir vegna lántöku Framleiðsluráðs landbúnaðarins. Ég skildi vel þá yfirlýsingu, sem talsmaður Alþfl. gaf áðan, að þrátt fyrir þann ágreining, sem flokkurinn gerir í n. í Ed., vill hann greiða fyrir afgreiðslu málsins. Fyrir liggur yfirlýsing þingflokks Sjálfstfl., sem formaður þingflokksins og hv. 5. landsk. þm. gáfu áðan, og yfirlýsing formanns þingflokks Alþb.
Liggur ríkisstj. svona á að losna við Alþingi? Ég heyrði einn af guðfeðrum ríkisstj. segja að hann vildi leggja allt í sölurnar til þess að ný ríkisstj. yrði mynduð, til þess að Alþ. gæti hafið störf því að það hefði verið starfslaust í langan tíma. Sá hv. þm. taldi að það lægi mikið á að fá ríkisstj. til að bjarga sæmd Alþingis. En nú á að senda sama Alþingi heim í hálfan mánuð. Urmull af málum liggur fyrir Alþingi, liggur í nefndum eða er til 1. umr. Það er fullkomið verkefni næstu viku.
Hæstv. forsrh. segir að það sé skylda ráðh. að sitja þingfundi. Vitaskuld er skylda ráðh. að sitja þingfundi. En skylda ráðh. hefur ekki verið svo mikil undanfarna daga að þeir hafi setið hér í stólunum. Lengst af í gær var þessi bekkurinn alveg tómur, þó að þeir sitji þarna fjórir núna og einn og tveir sátu hérna megin í gær og fyrradag. Það er helst maðurinn við ofninn sem situr hérna. Svo á bara að bjarga sæmd Alþingis með því að senda það heim!
Hvers vegna gengur forsrh. landsins fyrir þingflokkana og biður um að afgreiða ákveðin mál, eins og þetta mál um ábyrgðarheimildir og greiðsluheimildir vegna lántöku Framleiðsluráðs landbúnaðarins, þegar ekkert er í veginum að afgreiða það? Hvað segir landbrh. núna? Nú liggur ekkert á. Hann er nýlega búinn að flytja mikla ræðu við setningu Búnaðarþings, en nú á bara að bíða. Á hverju stendur? Það stendur ekki á neinu, segir hæstv. forsrh. Það eru komnar fram yfirlýsingar frá öllum. Ætlið þið að fara að vinna hér í kvöld? Hví ekki að halda áfram og afgreiða þetta mál? Er Framsfl. kannske eitthvað snúinn í málinu? Það hefur ekkert heyrst frá honum. Hann hafði þó mikinn áhuga á því í vor, en þó ekki það mikinn að hann vildi halda þinginu áfram — eða þáv. forsrh. — í einn dag til að ljúka því.
Nei, nú á að senda þingið heim. Það á ekki einu sinni að afgreiða það sem sagt var fyrir nokkrum klukkutímum að ætti að fara fram. Á svo þjóðin að trúa því, að það sé allt í lagi hjá ríkisstjórnarflokkunum? Svo á að reyna að koma þessu á kratana þrátt fyrir að þeir bjóðist til að sitja hér bæði nætur og daga — eða réttara sagt í kvöld og nótt — ef maður þarf til þess að afgreiða þetta mál.
Ég skora á forsrh. og ríkisstj. að láta þingið ekki hætta störfum að sinni fyrr en búið er að afgreiða þetta mál. Því verður ekki trúað, hvorki trúa því bændur né aðrir, að stjórnarandstaðan standi nú í veginum. Það er eitthvað að á stjórnarheimilinu. Það er eitthvað ekki alveg með felldu þar, fyrst þeir eru svona hræddir við að halda störfum áfram í kvöld eða fram eftir nóttu ef með þarf, sem ég efast stórlega um að þurfi til. Það er eitthvað óhreint í pokahorninu hjá hæstv. forsrh. Lukkustjórn þjóðarinnar er ekki hamingjusöm í dag.
Kl. þrjú eða hálffjögur var ákveðið að halda þessu máli til streitu og afgreiða það, en svo kom einhver fjandinn upp á og það varð mikið fjaðrafok í þinghúsinu í dag.
Ráðh. voru hlaupandi hver um annan þveran, ég tala nú ekki um aðalstuðningsmennina, sem brostu þannig að brosið náði alveg kringum höfuðið á þeim fyrstu dagana. En þeir eru ekki eins brosmildir núna sumir hverjir. Þeir eru eitthvað áhyggjufullir. Hvað er það sem er verið að dylja? Hvers vegna er ekki gengið hreint til verks? Hvers vegna þarf að hvetja stjórnina til að afgreiða eigin mál þegar báðir flokkar stjórnarandstöðunnar hvetja til afgreiðslu málsins? Hverjum á að trúa? Hvernig ætlar forsrh. lukkustjórnarinnar að sannfæra bændur landsins um að allt sé í fínu lagi á heimilinu?
Nei, það er allt komið í óreiðu eftir ekki hálfs mánaðar tíma, og það þarf endilega að reka þingið heim, — þingið sem einn af guðfeðrunum taldi að gæti starfað snurðulaust með því að fá ríkisstjórn. Það væri líka fróðlegt að heyra frá þeim þm. nú, hvað hafi valdið sinnaskiptum hans á ekki lengri tíma. Kannske hefur sannfæringin sagt honum að skipta um skoðun á síðasta augnabliki.