21.02.1980
Sameinað þing: 27. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 917 í B-deild Alþingistíðinda. (1023)
Umræður utan dagskrár
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Ég þarf ekki að bæta mörgum orðum við þessa umr.
Ég var einn þeirra sem töldu ástæðulaust að leysa upp þingið, eins og við getum kallað að gert sé nú. Ég hef hlustað á hv. þm. lýsa því yfir og kvarta yfir því, að mál þeirra gengju hægt fram, ýmis brýn áhugamál þeirra sem þeir telja, þáttill. t.d. í Sþ, væru enn óhreyfðar og ekki komnar til n., enda er útlit á þingstörfum það, að ólíklegt er að hin miklu áhugamál einstakra þm. fái neina afgreiðslu, af því sem ljóst er að hið háa Alþingi fær sem mest að vinna þegar það kemur saman á nýjan leik.
Ég hef oft áður minnst á þetta, að hið háa Alþingi þarf að sinna fleira en því sem sjálfum stjórnarherrunum dettur í hug, sem þá verði allt að víkja, hin brýnustu áhugamál einstakra þm., fyrir því hvernig hæstv. ríkisstj. á hverjum tíma vill skipa málum að undirlagi embættismannakerfisins að mestu leyti, eins og við þekkjum. En um þetta ætla ég ekki að fara fleiri orðum.
Það lá ljóst fyrir á fundi forseta í morgun, hvernig skipa skyldi afgreiðslu mála á hinu háa Alþingi, og kl. sex hyggst forseti Nd. halda áfram fundi til að greiða fyrir hinu brýna máli um ábyrgðarheimild vegna Framleiðsluráðs landbúnaðarins. Ég varpa nú þeirri spurningu fram, hvort enn megi ekki leysa þetta mál, hvort stjórnarliðið ætli nú að fara í útgöngu í málinu. Þeir sem tóku það til bragðs á sínum tíma, hafa legið undir miklu ámæli. En það verður þá útganga nr. tvö ef stjórnarliðið sjálft ætlar að hlaupast frá þessu máli nú.
Það liggur ljóst fyrir eftir yfirlýsingu hæstv. forsrh. nú, að stjórnarliðið er allt sammála um afgreiðslu þessa máls. Hæstv. forsrh. gat þess, sem rétt er, að Sjálfstfl. er það líka. Og fulltrúi Alþfl., hv. 2. þm. Reykn., lýsti yfir að Alþfl. væri reiðubúinn til að greiða fyrir þessu máli. Hann gat þess, að ekki mundu hv. þm. vera svo kvöldsvæfir að þeir entust ekki til að vinna nú sem skarplegast að þessu máli eitthvað fram eftir kvöldi, og á morgun var ákveðið að reyna að skila þessu máli í höfn. — Nú skora ég eindregið á þá, sem í fyrirsvari eru hér, hæstv. ríkisstj., að athuga hvort við getum ekki tekið til við þetta brýna hagsmunamál þannig að þeir á fyrstu dögum sínum sleppi nú við að verða kenndir við útgöngu nr. tvö í hagsmunamálum bænda.