10.03.1980
Neðri deild: 41. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 946 í B-deild Alþingistíðinda. (1050)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Alexander Stefánsson):

Þegar ég leyfði þessar umr. utan dagskrár treysti ég því, að ekki yrði um að ræða eldhúsdagsumræður, heldur aðeins efnislega um fsp. Ég vona að hv. alþm. haldi sig við efni þessarar fsp. utan dagskrár. En þetta gefur vissulega enn á ný ábendingu um það, að kominn sé tími til að taka til endurskoðunar ákvæði þingskapa að því er varðar fsp.