12.03.1980
Efri deild: 46. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1028 í B-deild Alþingistíðinda. (1102)

119. mál, Hitaveita Suðurnesja

Salome Þorkelsdóttir:

Herra forseti. Það er víst óhætt að segja að það kraumar í kötlunum á Reykjanesi eins og víðast annars staðar og þar mælast jarðhræringar alla daga ársins. Það er staðfest. En ég kom nú ekki hér í stólinn til þess að blanda mér í umr. um orkumál almennt eða Kröflu, til þess hef ég ekki næga þekkingu. Ég kom hér fyrst og fremst til þess að lýsa ánægju minni og stuðningi við þetta frv. og leggja áherslu á að það fái skjótan og greiðan framgang.