18.03.1980
Sameinað þing: 33. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1174 í B-deild Alþingistíðinda. (1182)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Jón Helgason):

Mér hefur borist eftirfarandi bréf:

„Reykjavík, 17. mars 1980.

Ólafur Jóhannesson, 5. þm. Reykv., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sinnt þingstörfum á næstunni, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að vegna forfalla 1. varamanns, Haralds Ólafssonar dósents, sem nú dvelst erlendis, taki 2. varamaður Framsfl. í Reykjavík, Sigrún Magnúsdóttir kaupmaður, sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Helgi Seljan,

forseti Ed.

Ég vil biðja kjörbréfanefnd að taka þetta kjörbréf til athugunar og verður gefið fundarhlé í 5. mín. á meðan. — Fundarhlé.