18.03.1980
Neðri deild: 45. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1176 í B-deild Alþingistíðinda. (1191)

45. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Vanda sveitarfélaganna var hægt að leysa á annan hátt en um vasa skattborgaranna. Þegar þeirri leið hefur nú verið hafnað sé ég enga ástæðu til þess að bera ábyrgð á fyrirhugaðri aukinni skattheimtu, sem þessi till. felur í sér, og segi því nei.