24.03.1980
Neðri deild: 48. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1345 í B-deild Alþingistíðinda. (1318)

45. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Hv. 1. þm. Reykn. tekur til máls, en nú vil ég geta þess, að ég hef ekki mælendaskrána eins og hún var í hinum löngu þrætum hér á dögunum svo að vera má að hv. þm. sé búinn að tala sig dauðan. En ef svo er gerir hann örstutta aths.