24.03.1980
Neðri deild: 48. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1346 í B-deild Alþingistíðinda. (1321)

45. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Þar sem ég hef ekki haft tíma eða tækifæri til að kynna mér þessar till. finnst mér eðlilegt, áður en umr. lýkur, að þm. fái að athuga till., þeim verði dreift í hv. d. og umr. fari fram þar á eftir. Ég hef áreiðanlega talsvert um till. að segja eftir að hafa fengið tíma til að kynna mér þær.