25.03.1980
Sameinað þing: 36. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1361 í B-deild Alþingistíðinda. (1352)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Jón Helgason):

Ég tel að í því, sem ég sagði í upphafi, hafi skilningur minn komið fram, þ.e. að ákvæði þingskapa um útvarpsumr. um stefnuræðu forsrh. geti ekki átt við þegar komið er fram á mitt þing. Ég hef ekki fleira við það að bæta.