27.03.1980
Sameinað þing: 39. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1510 í B-deild Alþingistíðinda. (1450)

116. mál, fjárlög 1980

Vilmundur Gylfason:

Herra forseti. Ég vil í fyrsta lagi taka undir hvert orð sem fram kom hjá hv. 5. þm. Vesturl., Eiði Guðnasyni, þegar hann bæði í dag og í gærkvöld gerði grein fyrir þessari tillögu. Alþfl. hefur birt stefnu sína í málefnum Lánasjóðs ísl. námsmanna sem byggist á því, að kerfi raunvaxta verði beitt við þennan sjóð og ávöxtun þessara lána verði rétt. Í framhaldi af þeim umr., sem hér hafa orðið, og í framhaldi af þessari till. mun þingflokkur Alþfl. leggja fram á næstu dögum frv. til l. um þessi efni og í þessa veru. Ég segi já.