27.03.1980
Sameinað þing: 39. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1513 í B-deild Alþingistíðinda. (1467)

116. mál, fjárlög 1980

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Stjórnarliðar hafa sýnt það í dag, að þrátt fyrir fögur orð í málefnasamningi er núv. ríkisstj. ekki tamt eða auðvelt að framfylgja því að vera með aðhald í ríkisbúskapnum. Ég held því að það væri glópska að ætla stjórnarliðum að taka sinnaskiptum milli umr. Ég treysti mér ekki til að fylgja þessum till. og greiði því ekki atkv.