27.03.1980
Sameinað þing: 39. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1513 í B-deild Alþingistíðinda. (1469)

116. mál, fjárlög 1980

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Það hefur mikið borið á því hjá þeim ágætu Alþfl.-mönnum, sem komið hafa hér upp í ræðustólinn í dag, að þeir væru allt í einu orðinn ábyrgur flokkur og kannske hefði aldrei fyrr verið á Alþ. jafnábyrgur flokkur, þeir bæru jafnan fram till. um tekjuliði á móti gjöldum. En þar sem það er ekki rétt í þessu tilfelli segi ég nei.