28.03.1980
Neðri deild: 51. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 1521 í B-deild Alþingistíðinda. (1484)

104. mál, lögréttulög

Dómsmrh. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Út af orðum hv. 9. þm. Reykv., hæstv. fyrrv. dómsmrh., vil ég aðeins taka fram, að frv. það um verðtryggingu dómkrafna, sem hann minntist á og valdi tvo ágæta lögmenn til að semja, var lagt á borðið hjá mér kl. rúmlega eitt í dag. Mér líst þannig á að þetta sé viðamikið og vandlega samið frv. og víða leitað fanga. Ég mun að sjálfsögðu láta skoða það vandlega og kryfja það til mergjar við fyrsta tækifæri.